Ég er fæddur árið 1992 á Seltjarnarnesi og hef búið þar alla mína tíð. Ég er nemandi við Háskólann í Reykjavík og er fyrirliði meistaraflokks Gróttu í handbolta og hef spilað með Gróttu frá því ég man eftir mér. Ég lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík vorið 2012 með fyrstu einkunn og tók mér þá árs frí frá skóla og einbeitti mér að handbolta, vinnu og ferðaðist svo um heiminn í þrjá mánuði sem víkkaði svo sannarlega sjóndeildarhringinn. Ég hef háleit markmið í handboltanum, náminu og að námi loknu. Ég ákvað að taka aukaáfanga í vefforritun hefur sá áfangi vakið mikinn áhuga hjá mér og m.a. útbjó ég þessa litlu síðu með öllum upplýsingum um mig. Það skemmtilega við þetta nám er að maður er sífellt að læra eitthvað nýtt og spennandi sem auðvelt er að hugsa sér að hafa atvinnu af í framtíðinni. Ég er með hreint sakavottorð, reyklaus og tel mig góðan í samskiptum, heilbrigðan og metnaðarfullan.
Ég er á minni fjórðu önn í hugbúnaðarverkfræði og fyrir það hafði ég tekið áfanga í Java í MR. Ég hef lokið áföngunum: Inngangur að tölvunarfræði, Stærðfræði I, Strjál stærðfræði, Forritun I og Eðlisfræði I, Gagnaskipan, Vefforritun (aukaáfangi), Stærðfræði II, Línuleg algebra, Greining og hönnun hugbúnaðar, Gagnasafnsfræði, Reiknirit, Hugbúnaðarfræði, Tölvuhögun og Financial system simulation. Ég útbjó þessa einföldu síðu eftir mína fyrstu önn og er að vinna að Android appi. Það er þó helst fyrir mig til að læra af.
Afhverju hugbúnaðarverkfræði? Vegna þess að ég hef mikinn áhuga á flestu tölvutengdu, t.d. tölvuöryggi, notendaviðmótum, hönnun o.fl. Afhverju að gera þessa síðu? Vegna þess að mig langaði frekar að gera það heldur en stærðfræði heimadæmin mín. Afhverju að ráða mig? Vegna þess að ég er metnaðarfullur, áhugasamur, fróðleiksfús og hef gaman af því sem ég geri.
Sími: 6980877 Netfang: arnibarnason@gmail.com